Fermingarguðsþjónustur sunnudaginn 24. mars kl. 10:30 og 13:30 í Lágafellskirkju.
Sr. Arndís Linn og sr. Henning Emil Magnússon þjóna. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti er Árni Heiðar Karlsson. Fiðluleikari: Sigrún Harðardóttir.
Meðhjálpari: Andrea Gréta Axelsdóttir.

Fermingar verða 24. mars, 6. og 7. apríl, 13. og 14. apríl og 19. maí í kirkjunum okkar. Alls 12 athafnir!
Við óskum fermingarungmennum innilega til hamingju með fermingardaginn sinn og óskum þeim Guðs blessunar út í lífið.
Takk fyrir skemmtilegan fermingarfræðsluvetur! Með kærleikskveðju frá sóknarnefnd og starfsfólki Lágafellssóknar.

Bogi Benediktsson

22. mars 2024 09:01

Deildu með vinum þínum