Foreldramorgnar
Fimmtudaga kl. 10 – 12
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð

Á dagskránni næstkomandi fimmtudag, 21. mars verður fræðsla um skyndihjálp ungra barna. Gestur: Guðmundur Ingi Rúnarsson kennir okkur réttu handtökin í skyndihjálp. Fræðslan er sjálfsögðum öllum að kostnaðarlausu.

Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.

Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.

Bogi Benediktsson

20. mars 2024 15:38

Deildu með vinum þínum