Kl. 13: Steina sunnudagaskóli = taka með sér 1x stein… í Lágafellskirkju.
Söngur, leikir, saga og fjör fyrir alla fjölskylduna.
Grænar gjafir og hressing í lok stundar.

Kl. 20: Taizé messa í Lágafellskirkju.
Uppskrift af ljúfri kvöldstund þar sem áhersla er lögð á söng, bæn og kyrrð fyrir komandi viku.
Sr. Henning Emil Magnússon þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng.
Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Organisti er Árni Heiðar Karlsson.
Meðhjálpari: Andrea Gréta Axelsdóttir. Kaffisopi í skrúðhúsi eftir messu.

Taizé messuformið er að hluta til byggð upp eftir fyrirmynd guðsþjónustu frá bæna- og líknarsamfélagi í þorpinu Taizé í Frakklandi. Þar er mikil áhersla lögð á einfalt form og einfaldan söng í guðsþjónustunni og gegnir endurtekning sálmanna sérstöku tilbeiðslu og íhugunar hlutverki.

Verið hjartanlega velkomin til kirkju!

Bogi Benediktsson

16. febrúar 2024 09:00

Deildu með vinum þínum