Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hjálparsjóð Lágafellssóknar fyrir jólin 2023. Jólaaðstoðin felst í inneignarkorti í matvöruverslanir.

Ýmis frjáls félagsamtök og einstaklingar í Mosfellsbæ gefa rausnarlega í sjóðinn á ári hverju og eru styrkir veittir til þeirra fjölskyldna og einstaklinga sem búsett eru í Mosfellsbæ og þurfa aðstoð fyrir jólin. Tekið er á móti umsóknum í gegnum netfangið lagafellskirkja@lagafellskirkja.is til og með 11. desember 2023. Styrkir verða afhentir 13. og 14. desember.

Upplýsingar sem þurfa að fylgja með umsókninni eru: Nafn, kennitala og heimilisfang. Fjöldi heimilisfólks og aldur, atvinnu/atvinnuleysi/örorku og stuttan rökstuðning fyrir umsókninni.

Nánari upplýsingar veita:
Sr. Henning Emil: henningemil@lagafellskirkja.is
Sr. Hólmgrímur: holmgrimur.bragason@lagafellskirkja.is

Bogi Benediktsson

11. desember 2023 09:00

Deildu með vinum þínum