Nú í morgun mættu fulltrúar frá Kiwanisklúbbnum Geysi í safnaðarheimilið og afhentu sr. Henning Emil Magnússyni fjárframlag til Hjálparsjóðs Lágafellssóknar. Við þökkum Geysi kærlega fyrir þeirra framlag sem mun klárlega nýtast vel. Ýmis frjáls félagsamtök, fyrirtæki og einstaklingar í Mosfellsbæ gefa rausnarlega í sjóðinn á ári hverju og eru styrkir veittir til þeirra fjölskyldna og einstaklinga sem búsett eru í Mosfellsbæ og þurfa aðstoð fyrir jólin. Vert er að benda þeim aðilum sem leggja til fé í sjóðinn að þau geta fengið skattaafslátt þar sem Lágafellssókn er skráð á almannaheillaskrá skattsins.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hjálparsjóð Lágafellssóknar fyrir jólin 2023. Jólaaðstoðin felst í inneignarkorti í matvöruverslanir. Tekið er á móti umsóknum í gegnum netfangið lagafellskirkja@lagafellskirkja.is til og með 11. desember 2023. Styrkir verða afhentir 13. og 14. desember.

Upplýsingar sem þurfa að fylgja með umsókninni eru: Nafn, kennitala og heimilisfang. Fjöldi heimilisfólks og aldur, atvinnu/atvinnuleysi/örorku og stuttan rökstuðning fyrir umsókninni.

Nánari upplýsingar veita:
Sr. Henning Emil: henningemil@lagafellskirkja.is
Sr. Hólmgrímur: holmgrimur.bragason@lagafellskirkja.is

Bakvið þessa SMELLU er hægt að lesa nánar um Hjálparsjóðinn.

Bogi Benediktsson

30. nóvember 2023 13:47

Deildu með vinum þínum