Í Gaman saman fimmtudaginn 19. október kl. 14 kemur Bjarki Bjarnason sagnfræðingur og flytur erindi um sögu Mosfellsbæjar.
Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Heitt á könnunni og meðlæti.

Verið velkomin!

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Dagskrá haustins 2023

Bogi Benediktsson

18. október 2023 09:00

Deildu með vinum þínum