Foreldramorgnar
Fimmtudaginn 5. október kl. 10 – 12
Safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna þá frestast skyndihjálparnámskeiðið og verður því ekki á morgun, fimmtudaginn 5. október. Í staðinn verður opið hús og við auglýsum þegar skyndihjálparnámskeiðið verður næst á dagskrá.

Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.

Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.

Dagskrá haustsins: 

Bogi Benediktsson

4. október 2023 09:00

Deildu með vinum þínum