“Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera
Kyrrðardagar í Mosfellskirkju verða laugardagana 20. maí og 27. maí 2023

Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við Mosfellskirkju
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita gjarnan upplýsingar. Skráning er á netfangi safnaðarins, lagafellskirkja@lagafellskirkja.is eða í síma 5667113 á skrifstofu frá 9 -13.

Ekkert gjald er tekið fyrir kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.

Bogi Benediktsson

26. maí 2023 12:00

Deildu með vinum þínum