![IMG_5537](https://www.lagafellskirkja.is/wp-content/uploads/2023/05/IMG_5537-e1715768827651.jpeg)
Síðustu fermingarguðsþjónustur ,,vertíðarinnar“ verða Hvítasunnudag 28. maí kl. 10:30 og 13:30 í Lágafellskirkju. 28 ungmenni fermd í tveim athöfnum. Sr. Arndís Linn og sr. Henning Emil Magnússon þjóna. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti: Þórður Sigurðarson. Fiðluleikari: Sigrún Harðardóttir. Meðhjálpari: Andrea Gréta Axelsdóttir.
Prestar og starfsfólk Lágafellssóknar óska fermingarbörnum og foreldrum þeirra hjartanlega til hamingju með daginn.
Guð blessi ykkur öll.
Bogi Benediktsson
24. maí 2023 10:51