Þá er komið að síðasta GAMAN SAMAN í safnaðarheimilinu í vetur. Þá verður slegið upp söngskemmtun þar sem félagarnir og mosfellingarnir Davíð og Stefán Helgi munu skemmta lýðnum með söng og segja gamansögur! Verið hjartanlega velkomin fimmtudaginn 4. maí kl. 14 – 16 í safnaðarheimilið, Þverholti 3.

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Bogi Benediktsson

3. maí 2023 10:49

Deildu með vinum þínum