Sumarnámskeið Lágafellssóknar 2023
fyrir 6 – 9 ára krakka (1. – 4. bekkur, fædd á árinu 2014 – 2017)

Lágafellskirkja býður upp á sumarnámskeið, þrjár vikur í júní og eina viku ágúst. Hver dagur byggist upp af leik, ævintýrum, söng, fræðslu, fjöri og útiveru. Sérstakur gestur á námskeiðunum verður töframaðurinn Einar Aron sem mætir með töfraskólann sinn og kennir krökkunum töfrabrögð. Töfrandi skemmtilegt! Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða 3 nestisstundir yfir daginn. Námskeiðin verða í gangi milli kl. 9 – 16 en húsið opnar kl. 8:45. Nauðsynlegt er að skrá þátttakendur í gegnum skráningarkerfið okkar. Nánari upplýsingar og skráning: SMELLIÐ HÉR.

Bogi Benediktsson

26. apríl 2023 09:00

Deildu með vinum þínum