Eftir snjóþunga fyrstu tvo mánuði ársins þá hvetjum við aðstandendur leiða í Lágafells, eldri- og nýja Mosfellskirkjugörðum að taka til skraut á leiðum ástvina sinna. Oft er miðað við í kirkjugörðum (ef aðstæður leyfa) að taka til skraut eftir jól og áramát fyrir 1. mars.

Einnig bendum við á að við kirkjugarðana okkar eru flokkunartunnur fyrir: lífrænan garðaúrgang (brún), blandað/almennt (grá), pappír/pappa (blá) og plast (græn). Aðstandendur bera svo sjálf ábyrð á því að taka með sér heim eða fara með í sorpu annan úrgang t.d. gler, málm, kerti ofl.

Kirkjugarðar Lágafellssóknar

Bogi Benediktsson

1. mars 2023 09:00

Deildu með vinum þínum