Foreldramorgnar
Miðvikudaga kl. 10 – 12
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð

Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur kemur í heimsókn miðvikudaginn 22. febrúar og verður með fræðslu um kynlíf og nánd eftir barnsburð. Verið velkomin.

Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin. Og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.

Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.

Bogi Benediktsson

21. febrúar 2023 10:54

Deildu með vinum þínum