Í Gaman saman fimmtudaginn 26. janúar kl. 14 mun Elín Sigrún Jónsdóttir lögmaður halda fyrirlestur um erfðamál. Elín Sigrún er eigandi lögfræðiþjónustunnar BÚUM VEL sem sérhæfir sig í erfðamálum og búsetubreytingum. Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Heitt á könnunni og meðlæti.

Verið velkomin!

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Bogi Benediktsson

25. janúar 2023 10:00

Deildu með vinum þínum