Foreldramorgnar
Miðvikudaga kl. 10 – 12
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð

Miðvikudaginn 18. janúar kl. 10 – 12 verður foreldrahittingur um hreyfingu. Elín Sigurðardóttir er með BSC í íþróttafræði frá HR og sérhæfður meðgöngu og mömmuþjálfari. Öll velkomin!

Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.

Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.

Bogi Benediktsson

17. janúar 2023 14:25

Deildu með vinum þínum