Fimmtudaginn 12. janúar kl. 14-16
Safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3

Gaman saman hefst á nýju ári fimmtudaginn 12. janúar og þá mun sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir halda fyrirlestur um drauma og merkingu þeirra.
Allir hjartanlega velkomnir, lofum góðri skemmtun og alltaf heitt á könnunni.

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ (FAMOS) og taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman Saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, 3. hæð frá kl. 14-16.

Bogi Benediktsson

11. janúar 2023 14:33

Deildu með vinum þínum