Foreldramorgnar
Miðvikudaga kl. 10 – 12
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð

Á fyrsta foreldramorgni á nýju ári, miðvikudaginn 12. janúar kl. 10 – 12 verður opið hús. Verið hjartanlega velkomin!

Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.

Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.

Bogi Benediktsson

10. janúar 2023 13:18

Deildu með vinum þínum