Vorönn 2023 í Lágafellsókn

Upphaf barnastarfsins hefst með sunnudagaskóla 8. janúar kl. 13 í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 (ATH: breytt staðsetning fyrir utan 2 undantekningar, 5. mars & 30. apríl)

Barnakórinn
Kóræfingar á mánudögum í safnaðarheimilinu. Nýir söngfuglar hjartanlega velkomnir! Hafið samband við kórstjóra: Valgerður Jónsdóttir

10 – 12 ára kl. 15:15 – 16:00
6 – 9 ára kl. 16:15 – 17:00

Æskulýðsfélagið ósoM
Á þriðjudögum kl. 20 – 21:30 í safnaðarheimilinu (húsið opnar kl. 19:30). Á dagskránni eru leikir, flipp & fjör. Helgina 17. – 19. mars verður stefnt á að fara á æskulýðsmót ÆSKR í Vatnaskógi. Umsjón: Bogi, Hákon, Petrína og Sigurður Óli.

Foreldramorgnar
Hefjast aftur miðvikudaginn 11. janúar kl. 10 – 12 í safnaðarheimilinu. Kríli og krútt velkomin í fylgd með fullorðnum. Heitt á könnunni og meðlæti ávallt í boði. Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir, guðfræðingur og Andrea Gréta Axelsdóttir, kirkjuvörður.

Fermingarfræðsla
Heldur áfram sínu striki frá og með þriðjudeginum 17. og miðvikudeginum 18. janúar. Prestar og fermingarfræðarar senda forráðafólki póst með nánari upplýsingum.

Bogi Benediktsson

4. janúar 2023 15:19

Deildu með vinum þínum