Vegna mikillar ánægju og góðrar þátttöku verður laugardeginum 17. desember bætt við Kyrrðardagana og verður þá kyrrðardagur með sama sniði og auglýst er hér að neðan. Verið velkomin kl.9:00 17. desember að hefja fjórða sunnudag í aðventu á kyrrðarstund.

“Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera. Kyrrðardagar í Mosfellskirkju verða á aðventunni laugardagana 26. nóvember og 3. desember 2022

Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við Mosfellskirkju
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þær gjarnan upplýsingar  í síma 5667113 á  skrifstofu frá 9 -13. Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.

Bogi Benediktsson

14. desember 2022 12:12

Deildu með vinum þínum