Fimmtudaginn 24. nóvember mun Halldór Reynisson prestur koma og ræða um sorgina í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Aðgangur ókeypis!

Allir hjartanlega velkomnir, lofum góðri skemmtun og alltaf heitt á könnunni.

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir

23. nóvember 2022 09:00

Deildu með vinum þínum