Laugardaginn 19. nóvember 2022 kl. 10-15 í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 í Mosfellsbæ

Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi ásamt Lágafellssókn bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn.

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.
Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.
Kennarar námskeiðsins eru Arna Harðardóttir og Bergþóra Baldursdóttir ásamt Erlu Björgu Káradóttur mentori þeirra. Þær eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um árabil.
Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=11
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.
Vinsamlegast greiðið þátttökugjald inn á eftirfarandi reikning:
Bn. 0114-26-1513
Kt. 450613-1500
Skýring: Kyrrðarbænanámskeið
Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is

Bogi Benediktsson

15. nóvember 2022 12:02

Deildu með vinum þínum