
Fimmtudaginn 10. nóvember kl. 14 mun Elfar Logi frá Komedíuleikhúsinu sýna glefsur úr Íslendingasögunum í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Aðgangur ókeypis!
Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman Saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.
Bogi Benediktsson
9. nóvember 2022 09:00