Allra heilagra messa kl. 11 í Lágafellskirkju
Látinna minnst með bænum, tónlist og ljós tendruð í minningu þeirra.
Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir söng undir stjórn organista. Prestur: sr. María Rut Baldursdóttir.
Meðhjálpari: Hanna Margrét Gísladóttir.

Jól í skókassa sunnudagaskóli kl. 12 – 14 – Opið (skrúð)hús Lágafellskirkju
Opið (skrúð)hús þar sem allir geta undirbúið skókassa gjafir fyrir verkefnið. Við reddum tómum skókössum, pappír og öðru til að pakka inn.
Hægt er að koma með gjafir til að setja í kassana eða bara pakka inn skókassa sem hjálpar verkefninu. Djús, ávextir og heitt á könnunni í notalegri stemningu.
Verkefnið Jól í skókassa hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú! Síðan 2004 hafa Íslendingar sent jólapakka til barna á munaðarleysingjahælum í Úkraínu og
hefur KFUM&K á Íslandi haldið utan um verkefnið. Skilafrestur til að skila inn skógjöfum er til laugardagsins 12. nóvember að Holtavegi 28, RVK.
Við bjóðum einnig Mosfellingum að skila skókössunum til okkar, næsta sunnudag eða á opnunartíma safnaðarheimilisins, Þverholti 3.

Nánari upplýsingar um Jól í skókassa verkefnið er á bakvið þessa SMELLU!

Verið hjartanlega velkomin!

Bogi Benediktsson

3. nóvember 2022 11:30

Deildu með vinum þínum