
Sunnudagurinn 23. október í Lágafellskirkju
Kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn prédikar og þjónar fyrir altari.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar, organista.
Meðhjálpari: Andrea Gréta Axelsdóttir.
Kl. 13: Þakklætissunnudagaskóli í Lágafellskirkju. Gleði, þakklæti, söngur, biblíusaga og brúðuleikrit.
Í lokin verður í boði grænar gjafir frá kirkjunni, föndur, litir, djús og kex í skrúðhúsi.
Verið hjartanlega velkomin til kirkju!
Bogi Benediktsson
19. október 2022 10:43