Haustið / veturinn 2022 verður eins og undanfarið boðið uppá andlegt ferðalag í anda Tólf sporanna í Mosfellsbæ. Sporin eru unnin eftir kerfi þar sem tekist er á við óuppgerðar tilfinningar. Flestum okkar hættir til að dragnast með slíkt í gegnum lífið með tilheyrandi þjáningum og ójafnvægi. Ekki er horft á fíkn sérstaklega. Kynningarfundir verða alla miðvikudaga í október 2022 kl. 19:30 – 21:30 í safnaðarheimilinu, Þverholti 3. Eftir það er hópunum lokað en það er eðli þess starfs að það er unnið í lokuðum hópum þar sem trúnaður myndast til að takast á við óuppgerðar tilfinningar.

Nánar um 12 sporin á bakvið þessa SMELLU

Hér fyrir neðan er stutt kynningarmyndband sem var unnið af Vinir í bata – 12 spora samtökunum á Íslandi:

Bogi Benediktsson

19. október 2022 09:32

Deildu með vinum þínum