Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ og taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman Saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram (sirka) annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16. Á fyrstu samverunni, fimmtudaginn 6. október kl. 14 mun kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnarsdóttir fræða og flytja fyrirlesturinn sinn: 69 og sexý!

Bogi Benediktsson

3. október 2022 09:00

Deildu með vinum þínum