Barnakór Lágafellssóknar
Æfingar hefjast mánudaginn 19. september og verða í safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3. Stefnt verður að því að syngja allskonar skemmtileg lög, koma fram á viðburðum í Lágafellskirkju og jafnvel víðar.

10 – 12 ára krakkar
Kóræfingar á mánudögum kl. 15:15 – 16:00

6 – 9 ára krakkar
Kóræfingar á mánudögum kl. 16:15 – 17:00

Gjald fyrir hvora önn:
Haustönn 2022: 8.000 kr.
Vorönn 2023: 8.000 kr.
Veittur er 20% systkinaafsláttur. Nauðsynlegt er að skrá sig í gegnum skráningarkerfið okkar.

Umsjón: Valgerður Jónsdóttir, tónmenntakennari & sönkona. Einnig á kóræfingum mun Þórður Sigurðarson, organisti sjá um undirleik.
Nánari upplýsingar & fyrirspurnir veitir Valgerður á netfanginu: valgerdur@lagafellskirkja.is


Nánar um kórstjórann:

Valgerður Jónsdóttir er söngkona og tónmenntakennari frá Akranesi. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 og lokaprófi í söng frá Tónlistarskóla FÍH árið 2004. Valgerður hefur lifað og hrærst í kórastarfi allt frá barnæsku. Hún hefur stjórnað fjölda kóra, bæði barna- og fullorðinna, í Danmörku og hér á Íslandi. Valgerður var Bæjarlistamaður Akraness 2021 og hefur gefið út mikið af eigin tónlist, m.a. bókina „Tónar á ferð-Söngbók“ sem inniheldur nýja tónlist í útsetningum fyrir barna- og ungmennakóra.

Það er mikill fengur fyrir Lágafellssókn að fá Valgerði í teymið okkar!

Bogi Benediktsson

25. september 2022 12:00

Deildu með vinum þínum