Foreldramorgnar hefjast á ný haustið 2022 á breyttum vikudegi. Þeir verða alla miðvikudaga kl. 10 – 12 í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, 3. hæð.

Dagskrá: Opið hús.

Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir og Andrea Gréta Axelsdóttir.

Bogi Benediktsson

6. september 2022 18:30

Deildu með vinum þínum