Í Mosfellsbæ hafa einstaklingar og frjáls félagasamtök tekið höndum saman og veita styrk til jólahalds, þeim fjölskyldum og einstaklingum búsettum í Mosfellsbæ þar sem þröngt er í búi fyrir jólin.

Jólaaðstoðin felst í inneignarkorti í matvöruverslanir.

Tekið er á móti umsóknum í gegnum netfangið: lagafellskirkja@lagafellskirkja.is til og með 10. desember 2021.

Upplýsingar sem þurfa að fylgja með umsókninni eru:
Nafn, kennitala og heimilisfang. Fjöldi heimilisfólks og aldur, atvinna/atvinnuleysi/örorka og stuttur rökstuðningur fyrir umsókninni.

Nánari upplýsingar veita:
Sr. Ragnheiður:  ragnheidur@lagafellskirkja.is
Sr. Arndís:          arndis@lagafellskirkja.is

Sóknarprestur

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

3. desember 2021 11:03

Deildu með vinum þínum