Prjónasamvera er í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, annað hvert fimmtudagskvöld kl. 19:30 – 21:30 í vetur. Næsta prjónasamvera verður fimmtudagskvöldið 25. nóvember kl. 19:30. Markmið þessara kaffistunda er að koma saman og láta gott af sér leiða. Hópurinn prjónar fyrir hjálparstofnun kirkjunnar og Ítex hefur gefið garn í prjónaskapinn.

Öll velkomin!

Bogi Benediktsson

25. nóvember 2021 10:07

Deildu með vinum þínum