Heilunarguðsþjónusta undir yfirskriftinni ,,Leyfðu höndum Guðs að snerta við þér“ verður í Lágafellskirkju, föstudaginn 12. nóvember kl. 20:00. Sr. Arndís Linn þjónar fyrir altari og Vigdís Steinþórsdóttir og hópur heilara aðstoðar við athöfnina. Svava Kristín Ingólfsdóttir, söngkona og Þórður Sigurðarson organisti sjá um tónlistina. Græðarar verða staðsettir á nokkrum stöðum fyrir altari og munu heila kirkjugesti þaðan. Á meðan á heiluninni stendur verður tónlist og söngur.
Öll eru hjartanlega velkomin

Bogi Benediktsson

9. nóvember 2021 12:08

Deildu með vinum þínum