… í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð
Fimmtudaginn 7. október kl. 10 – 12

Foreldramorgnar eru skemmtilegt tækifæri fyrir kríli, krútt og foreldra þeirra að njóta sín í góðu umhverfi. Foreldramorgnar eru á fimmtudögum kl. 10 – 12 í safnaðarheimilinu okkar, 3. hæð. Þar er nóg pláss fyrir börn að leika og foreldra að spjalla. Einnig verða léttar veitingar í boði.

Á dagskránni verður fræðsla um svefnvenjur barna og við fáum góðan gest, Ingibjörgu Leifsdóttur til að fræða okkur.

Umsjón: Bryndís Böðvarsdóttir.

Allir hjartanlega velkomnir.

Og hægt er að fylgjast með foreldramorgnum á FACEBOOK undir Foreldramorgnar í Lágafellskirkju, Mosfellsbæ

Bogi Benediktsson

6. október 2021 13:45

Deildu með vinum þínum