Haustið / veturinn 2021 verður eins og undanfarið boðið uppá andlegt ferðalag í anda Tólf sporanna í Mosfellsbæ. Sporin eru unnin eftir kerfi þar sem tekist er á við óuppgerðar tilfinningar. Flestum okkar hættir til að dragnast með slíkt í gegnum lífið með tilheyrandi þjáningum og ójafnvægi. Ekki er horft á fíkn sérstaklega. Kynningarfundur verður MIÐVIKUDAGINN 6. Október 2021 kl. 19:30 og í framhaldi verða opnir fundir næstu 3 miðvikudaga á eftir. Eftir það er hópunum lokað en það er eðli þess starfs að það er unnið í lokuðum hópum þar sem trúnaður myndast til að takast á við óuppgerðar tilfinningar. Fundirnir eru haldnir í safnaðarheimilinu, Þverholti 3 á miðvikudögum.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

10. september 2021 15:51

Deildu með vinum þínum