Í vetur verður eins og undanfarið boðið uppá andlegt ferðalag í anda Tólf sporanna í Mosfellsbæ. Sporin eru unnin eftir kerfi þar sem tekist er á við óuppgerðar tilfinningar. Flestum okkar hættir til að dragnast með slíkt í gegnum lífið með tilheyrandi þjáningum og ójafnvægi. Ekki er horft á fíkn sérstaklega. Kynningarfundur verður MIÐVIKUDAGINN 30. september 2020 kl. 19:00 og í framhaldi verða opnir fundir næstu 3 miðvikudaga á eftir. Eftir það er hópunum lokað en það er eðli þess starfs að það er unnið í lokuðum hópum þar sem trúnaður myndast til að takast á við óuppgerðar tilfinningar. Fundirnir eru haldnir í safnaðarheimilinu að Þverholti 3 á miðvikudögum.

Vinir í Bata er hópur kvenna og karla sem hafa tileinkað sér 12 sporin – andlegt ferðalag. Hægt er að kynna sér samtökin á heimasíðu þeirra.

Bogi Benediktsson

29. september 2020 11:40

Deildu með vinum þínum