Kirkjureið til Mosfells og guðsþjónusta í Mosfellskirkju sunnudaginn 7. júní kl. 14.00:

Hestamenn úr hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ koma ríðandi á fákum sínum til Guðsþjónustu.

Lagt verður af stað frá hesthúsahverfinu í Mosfellsbæ og riðið verður inn hinn fagra Mosfellsdal að hinum forna og sögufræga kirkjustað Mosfelli.
Ræðumaður verður Jóhannes Kristjánsson, skemmtikraftur.

Félagar úr karlakór Kjalnesinga munu syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar kórstjóra og organista.

Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir

Kirkjuvörður: Bryndís Böðvarsdóttir

Kirkjukaffi verður að athöfn lokinni í boði hestamannfélagsins í félagshúsi þeirra Harðarbóli í hesthúsahverfinu

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

1. júní 2020 14:47

Deildu með vinum þínum