Tvær fermingarguðsþjónustur verða næstkomandi sunnudag. Fyrri athöfnin hefst kl. 10:30 og er í Lágafellskirkju  og sú síðari  kl. 13:30 í Mosfellskirkju. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Kristín Pálsdóttir þjóna í báðum athöfnum. Einsöng syngur Jón Magnús Jónsson og Sigrún Harðardóttir leikur á fiðlu. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Ragnars Jónssonar organista. Í þessum athöfnum verða 24 börn fermd. Hægt er að sjá lista yfir fermingarbörn Lágafellssóknar þetta vorið hér.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

5. apríl 2016 15:49

Deildu með vinum þínum