“Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera. Kyrrðardagar í Mosfellskirkju laugardaginn 26. september 2015
Laugardaginn 26. september frá  kl. 9-16 verður Kyrrðardagur að Mosfelli. Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama.
Umsjón með deginum hafa sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir.
Allir velkomnir – þátttaka ókeypis.  Þáttakendur mæti frá kl.9.
Upplýsingar og skráning: sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sími 8699882

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

8. september 2015 14:04

Deildu með vinum þínum