
Kyrrðarsamvera verður á aðventunni í Mosfellskirkju, Mosfellsdal, laugardagana 29.nóv. og 13.des. kl.9 – 12. Við göngum inn í kyrrðina kl. 9.00 og iðkum „kyrrðarbænina“. Eftir setuna göngum við út í sólarupprás og morgunkyrrð, njótum útiveru og förum í stuttan göngutúr í dalnum. Samverunni líkur í kirkjunni ca.kl.12:00.
Umsjón með stundinni hafa Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir
Nánari upplýsingar hjá Ragnheiði í síma 869-9882. Komdu og vertu með!
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
26. nóvember 2014 12:55