Eins og við höfum áður sagt þá erum við ákaflega stolt af barnakórnum okkar. Nú sumardaginn fyrsta 25. apríl kl. 14 í Hallgrímskirkju verður haldinn Söngvahátíð barnanna. Eldri hópurinn sem samanstendur af krökkum úr 3. – 7. bekk munu koma fram undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur kórstjóra. Það verður mikið um dýrðir. Öll velkomin á þessa skemmtilegu sönghátíð (á meðan hús/kirkjurými leyfir)!

Bogi Benediktsson

23. apríl 2024 12:58

Deildu með vinum þínum