
Gul messa verður í Lágafellskirkju næstkomandi sunnudag, 13. september kl. 20:00. Sú hefð hefur skapast að hafa gula messu þann sunnudag sem hittir á sömu viku og alþjóðlegur forvarnadagur gegn sjálfsvígum sem að þessu sinni er 10. september.
Sr. Sigurður Grétar Helgason leiðir stundina og Bjarmi Hreinsson og Sara Gríms flytja ljúfa tóna.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Katrín Valdís Hjartardóttir
9. september 2026 15:32

