Sóknarnefnd Lágafellssóknar
Sóknarnefndarfundur: 2. desember 2025 kl. 17.00.

Fundargerð
Mættir voru safnaðarprestarnir Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttur og Sr. Arna Grétarsdóttir auk framkvæmdastjóra Jóhönnu Ýr Jóhannsdóttur. Eftirtaldir aðalmenn mættu: Elísabet Sigurveig Ólafsdóttir sóknarnefndarformaður, Haraldur Sigurðsson, Halla Karen Kristjánsdóttir, Guðmundur Jónsson og Sigurður Óli Karlsson.
Varamenn voru mættir: Björn Ó Björgvinsson, Brynhildur Sveinsdóttir, Kristín Valdemarsdóttir, Jónína Sif Eyþórsdóttir og Kristín Edda Guðmundsdóttir
Fjarverandi og forföll: Valgerður Magnúsdóttir, Örn Jónasson.

1. Formaður sóknarnefndar setti fundinn og bauð fundarfólk velkomið.
2. Tónlistarstjóri sóknarinnar fór yfir tónlistarflutning í Lágafellskirkju í desember, sérstaklega yfir jól og áramót. Kom fram hjá tónlistarstjóra að fjölbreytni verður í tónleikahaldi yfir aðventu og jól, bæði í hljóðfæraleik og söng.

3. Safnaðarprestur las Lúkasarguðspjall og fór með bæn.

4. Kirkjuvörður fór yfir störf kirkjuvarða. Kom fram að í starfi kirkjuvarða felst m.a. þrif á kirkjum, umsjón með öryggiskerfi, sorphirðu og sjá um aðföng, s.s. kaffi o.fl. sem þarf að vera til staðar fyrir starfsfólk kirkjunnar. Einnig situr hún í stjórn húsfélagsins að Þverholti 3 fyrir hönd Lágafellssóknar.

5. Farið var yfir fundargerðir frá 8. október og 5. nóvember og þær samþykktar.

6. Framkvæmdastjóri fór yfir framkvæmdir á Mosfelli. Fram kom að krani væri kominn á staðinn og búið væri að taka niður turn kirkjunnar. Unnið væri að endurbætur á honum svo og að innréttingum í kirkjunni. Framkvæmdastjóri kynnti tilboð í stóla fyrir kirkjuna, en ekkert var ákveðið í þeim efnum eða hvort ætti að lagfæra gömlu bekkina, sem í kirkjunni voru.

7. Gjaldkeri sóknarinnar upplýsti að ekki fengist framlag frá Jöfnunarsjóði sókna vegna viðgerðar á Mosfellskirkju á þessu ári.

 

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

20. febrúar 2026 10:58

Deildu með vinum þínum