Öflugt og skemmtilegt námskeið fyrir  13 -15 ára stráka verður haldið í safnaðarheimili  Lágafellskirkju. Námskeiðið verður haldið fimm fimmtudaga í röð  kl 18 -20 og hefst 7. nóvember. Þátttökugjald er aðeins 5000 krónur. Leiðbeinandi er Valdimar Þór Svavarsson sem hefur margra ára reynslu af fjölbreyttri ráðgjöf og námskeiðs- og fyrirlestrahaldi og starfar hjá ráðgjafaþjónustunni Fyrsta skrefið. Á námskeiðinu verða ýmiskonar leikir  og fræðsla. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því er um að gera að skrá sig sem fyrst. Skráning hér https://www.lagafellskirkja.is/born-og-unglingar/ungir-menn-a-uppleid/

 

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

30. október 2019 12:59

Deildu með vinum þínum