Aðalfundur Lágafellssóknar sem áður var á dagskrá 14. maí er frestað um viku og verður nú haldinn þriðjudaginn 21. maí kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og kosið verður í hluta sóknarnefndar. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Lágafellssóknar sem er til húsa í Þverholti 3, á þriðju hæð. Sóknarnefnd Lágafellssóknar hvetur Mosfellinga til að koma og kynna sér starfið í kirkjulegu samhengi bæjarfélagins. Á fundinum verður tónlistaratriði. Öll þau sem búa í Mosfellsbæ eru hjartanlega velkomin á fundinn!

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

11. maí 2019 10:35

Deildu með vinum þínum