Lágafellssókn kallar fermingarbörn næsta vors til skráningarguðsþjónustu í LágafellsSKÓLA
kl. 20 sunnudaginn 13. maí. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng
undir stjórn Þórðar Sigurðarson.

Sérstakur gestur er Unnsteinn Manuel Stefánsson, söngvari, og mun hann syngja fyrir okkur.

Prestar og starfsfólk safnaðarsins leggja guðsþjónustunni lið.

Í þessari guðsþjónustu verður hægt að skrá börn fædd 2005 til skráningar á fermingardag næsta vor(2019).
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um fermingardaga og skráningarblöð sem annars hafa verið
send til foreldra og forráðamanna barna í Mosfellsbæ fædd 2005.

 

Skráningarblað  skraningarbl a5

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

8. maí 2018 09:08

Deildu með vinum þínum