Frá kirkjugöngu á Mosfell 2009

“Gríptu daginn” –  í kyrrð
Kyrrðardagur verður haldinn  í Mosfellskirkju og á Mosfelli laugardaginn 31. maí kl. 9 – 13 . Íhugun – kyrrð – útivera/fjallganga í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af sér veturinn og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama.
Við verðum með stund í kirkjunni og göngum einnig á Mosfell – gott að vera vel skóaður.
Allir velkomnir – þátttaka ókeypis. Nánari upplýsingar veitir sr. Ragnheiður Jónsdóttir í síma 869 9882
.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

29. maí 2014 13:18

Deildu með vinum þínum