Sunnudaginn 23. mars hefjast fermingarguðsþjónustur í Mosfellsprestakalli. Fyrri fermingarathöfnin er kl.10:30 og verða 7 börn fermd.  Síðari athöfnin er  kl. 13:30 og þá verða 15 börn fermd. Starfandi prestar sóknarinnar,  Sr. Skírnir Garðarsson og sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn þjóna í athöfnunum. Kirkjukór Lágafellskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar og Arnhildar Valgarðsdóttur Organista. Í báðum athöfnum syngur Jón Magnús Jónsson einsöng og Greta Salóme Stefánsdóttir leikur á fiðlu. Meðhjálpari er Rut G. Magnúsdóttir.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

21. mars 2014 12:33

Deildu með vinum þínum