“Gríptu daginn” –  í kyrrð er yfirskrift Kyrrðardags sem haldinn verður í Mosfellskirkju laugardaginn 14. september kl. 9:00 – 16:00.
Kyrrðardagurinn samastendur af Íhugun, kyrrð  og útiveru í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.

Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama.
Umsjón með deginum hafa Sigurbjörg Þorgrímsdóttir og sr. Ragnheiður Jónsdóttir leiðbeinendur í Kyrrðarbæninni – Centering Prayer.  Allir velkomnir – þátttaka ókeypis. Upplýsingar og skráning: sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sími 8699882

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

10. september 2013 18:49

Deildu með vinum þínum