Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


Febrúar 2012 Mars 2012
Su Þr Mi Fi La
Week 5 1 2 3 4
Week 6 5 6 7 8 9 10 11
Week 7 12 13 14 15 16 17 18
Week 8 19 20 21 22 23 24 25
Week 9 26 27 28 29

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur og 1 notandi inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Selurinn Snorri heimsækir Lágafellskirkju 12. febrúar
Þriðjudagur, 07 Febrúar 2012

Selurinn_Snorri_018Í upphafi kærleiksviku sunnudaginn 12. febrúar kl. 13:00 mun Helga Steffensen ásamt sínu fólki sýna okkur brúðuleikritið um selinn Snorra. Leikiritið um selinn Snorra er unnið upp úr sögu norska rithöfundarinsFrithjof Sælen, sem kom fyrst út í íslenskri þýðingu árið 1950. Bókin, sem er fyrir börn á öllu aldri hefur notið fádæma vinsælda. Sagan gerist langt norður í íshafinu þar sem selurinn Snorri lendir í mörgum ævintýrum á ísbreiðunni. Ýmsar persónur koma við sögu  s.s. rostungurinn Skeggi, fiskar og kópar. Einnig koma við sögu verstu óvinir Snorra eins og ísbjörninn Voði og hvalurinn Glefsir sem eins gott er að vara sig á. Handritið gerði Helga Steffensen Brúðurnar eru eftir Helgu og Ernu Guðmarsdóttur. Helga stjórnar brúðunum ásamt Gígju Hólmgeirsdóttur. Leikstjóri er Örn Árnason.  Allir hjartanlega velkomnir

 
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju 5. febrúar
Fimmtudagur, 02 Febrúar 2012

lagafellsnjorGuðsþjónusta verður í Lágafellskirkju, sunnudaginn 5. febrúar kl. 11:00. sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og predikar. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur, organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Gestasöngvarar eru konur úr Bústaðasókn, sönghópurinn “Glæðurnar”. Ágústa Dómhildur spilar á fiðlu.

Sunnudagaskóli verður í Lágafellskirkju kl.13:00. Umsjón hafa Hreiðar Örn og Arnhildur.

 
Kynning frá Ömmu mús - handavinnuhúsi á prjónasamveru
Þriðjudagur, 31 Janúar 2012

jesus2Á næstu prjónasamveru sem verður fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20:00 kemur Hildur frá Ömmu mús - handavinnuhús og verður með vörukynningu. Allir eru hjartanlega velkomnir á prjónasamveruna þar sem áhugamanneskjur um prjónaskap koma saman, prjóna, ræða saman og deila reynslu og hugmyndum. Umsjón með prjónasamverum hefur Fjóla Haraldsdóttir djákni safnaðarins.

 
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju (breyting)
Miðvikudagur, 25 Janúar 2012

krossmosfellGuðsþjónustan sem átti að vera í Mosfellskirkju sunnudaginn 29. janúar kl.11:00. verður í Lágafellskirkju. Kirkjukór safnaðarins leiðir safnaðarsöng. Ásta Birna Björnsdóttir nemandi úr söngnemi í Listaskóla Mosfellsbæjar syngur einsöng. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari.

Sunnudagaskólinn er á sínum stað að venju í Lágafellskirkju kl. 13:00. Umsjón hafa Hreiðar Örn og Arnhildur.

 
Dagskrá foreldramorgna fram á vor
Mánudagur, 23 Janúar 2012

ungabornDagskrá foreldramorgna fyrir vorönn 2012 er nú aðgengileg hér á vef Lágafellskirkju. Að þessu sinni verður fræðsla fjórum sinnum á önninni. Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir kemur 15. febrúar og ræðir um Holdafar, heilsu og líkamsímynd, 14. mars er það Elínborg J. Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslu Mosfellsumdæmis sem ræðir um svefn og svefnvandamál ungbarna. Í byrjun apríl, þann 11. kemur Hrönn Guðjónsdóttir og fræðir um ungbarnanudd. 25. apríl kemur svo sr. Ragnheiður Jónsdóttir sóknarprestur og ræðir um börn og bænir. Hægt er að skoða dagskránna undir liðnum foreldramorgnar.

 
Taize-guðsþjónusta í Lágafellskirkju
Miðvikudagur, 18 Janúar 2012

kvoldkirkjaTaize guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunnudaginn 22. janúar kl. 20:00. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari. Tvöfalt kvennatríó Kirkjukórsins syngur og Anna Valdís Einarsdóttir spilar á þverflautu. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir.

Sunnudagaskólinn á sínum stað í Lágafellskirkju kl. 13:00 Umsjón hafa Hreiðar Örn og Arnhildur.

 
Fermingarfræðsla fellur niður í dag
Miðvikudagur, 18 Janúar 2012

Fermingarfræðslan fellur niður í dag, miðvikudaginn 18. janúar.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 56

Á döfinni



Tenglar