Laust er til umsóknar 75% staða/starf organista við Lágafellssókn í Mosfellsbæ frá og með 15. ágúst 2017. Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið Kantorsprófi, sé í kantorsnámi, eða hafi sambærilega menntun og reynslu.  Starfskjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og FÍO/organistadeildar FÍH.

Umsóknarfrestur er til 25. apríl næstkomandi. Umsóknir skal senda til sóknarnefndar Lágafellssóknar, Þverholti 3, 270 Mosfellsbæ.

Frekari upplýsingar um starfið veita: Rafn Jónsson, formaður sóknarnefndar – netfang: rabbi(hja)centrum.is – sími: 896 8916. Og sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sóknarprestur (netf: ragnheidur.jonsdottir(hja)kirkjan.is – sími : 869 9882

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

20. mars 2017 15:17

Deildu með vinum þínum