Kyrrðarstundir verða í Mosfellskirkju laugardagana 28. maí og 4. júní frá 9:00 til 11:00. Í fallegu umhverfi í Mosfellsdalnum verður komið  saman í kirkjunni og íhugað eftir aðferð Kyrrðarbænarinnar, gengið í dalnum eða á Mosfell og að lokum komið aftur til kirkju þar sem gengið verður til altaris.

Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af sér veturinn og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Kyrrðarbænin er einföld hugleiðslu aðferð innan kristninnar hefðar sem auðvelt er að læra og tileinka sér. Finna má nánari upplýsingar um hana á heimasíðu Kyrrðarbænasamtakanna, www.kristinihugun.is   Umsjón hefur sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn  og hægt er að skrá sig á netfanginu arndis.linn@lagafellskirkja.is eða í síma 866 8947. Ekki er greitt fyrir þátttöku og eru allir velkomnir.

Fyrri kyrrðarstundin er hluti af viðburðum í Hreyfiviku UMFÍ.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

26. maí 2016 09:27

Deildu með vinum þínum